SAMSÝNING MEÐ SJÁLFRI MÉR nr.2 – JONNA

Í tilefni sextugsafmælis Jonnu kemur sýningin Samsýning með sjálfri mér nr. 2. Á sýningunni eru fjömörg verk unnin úr textil og uppnýtingarefnum þar sem viðfangsefnin eru mörg og margvísleg frá hinum og þessum sýningum hennar, en það sem þau eiga sameiginlegt er að öll eru unnin úr afgöngum – bæði hennar eigin og annarra. Verkin eru afrakstur vinnu síðustu ára, en hún hélt Samsýningu með sjálfri mér árið 2015 og þá voru verk þessa tímabils sýnd. Sýningin er aðeins í þessa þrjá daga í Deiglunni:
Föstudaginn 3. júlí: 14-17
Laugardaginn 4. júlí: 14-17
Sunnudaginn 5. júlí: 14-17
Í lok hvers dags verður dansað við dúndrandi tónlist frá kl. 17.00-17.30. Endilega kíkið við – öll velkomin!