Frelsi í fjallasal – Ragnar Hólm

Ragnar Hólm sýnir nýjar vatnslitamyndir í Deiglunni.
Um hvítasunnuhelgina sýnir Ragnar Hólm nýjar vatnslitamyndir í Deiglunni og kallar sýninguna „Frelsi í fjallasal“. Myndirnar eru allar af landslagi og gjarnan með fjöll eða fell í aðalhlutverki. Sýningaropnun verður kl. 17 föstudaginn 22. maí.
„Ég hafði gott næði til að vatnslita upp úr miðjum apríl og lét hendur standa fram úr ermum. Það fæddust stundum tvær frambærilegar myndir á dag. Þannig er þetta; sköpunarkrafturinn brýst fram með látum en svo dúrar inn á milli.
Um hvítasunnuna verð ég með vatnslitanámskeið í Deiglunni en ákvað að sýna líka þessar nýju vatnslitamyndir sem ég hengi upp í hluta salarkynnanna og vona að þetta fari vel saman,“ segir Ragnar Hólm um sýninguna „Frelsi í fjallasal.“
Opið verður á föstudag frá kl. 17-19 og laugardag, sunnudag og mánudag frá kl. 15-17.
