Listamenn í vinnslu – Samsýning
Við minnum á opnun Aðalheiðar Jónu Kolbeins Liljudóttur, Hafeyjar Hvítfeld og Mauhaut Ingiríðar Matharel – Listamenn í vinnslu – í kvöld klukkan 20:00! Þetta er fyrsta sjálfstæða listasýningin þeirra og um að gera að koma að sína ungu listafólki stuðning! Nánari upplýsingar má finna í viðburði.
„Þessi sýning er algjört bland í poka. Þetta er fyrsta sjálfstæða listasýningin okkar og ákváðum við því að leyfa okkur að sýna hverjar við erum án þess að festa okkur um of í stærra þema. Þó reyndum við að hafa svolítið samræmi og notuðumst við við þrjá meginliti: bláan, bleikan og grænan, í verkunum okkar.
Sum verk verða til sölu á sýningunni og verða þau vel merkt. Það er spennandi og mikill heiður fyrir okkur að fá að sýna hjá Gilfélaginu og vonumst við eftir sem flestum gestum til að styðja okkur áfram í þessum fyrstu skrefum okkar á listaferlinum.“
Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir útskrifaðist af listnámsbraut VMA vorið 2025 og síðasta árið hef ég unnið á leikskólanum Klöppum og lært mikið. Jafnframt hefur hún stundað nám við Tónlistarskóla Akureyrar þar sem hún stefnir á að klára framhaldspróf á fiðlu og básúnu. Verkin hennar eru af ýmsum toga þar sem hún er að þróa og átta sig á eigin stíl og húmor í verkunum.
Hafey Hvítfeld útskrifaðist með stúdentspróf af listnámsbrautinni í VMA og er núna í Háskóla Íslands að læra að verða náttúrufræðikennari. Hún hefur haldið sýningar í samstarfi við skóla og Amtsbókasafnið.
Mahaut Ingiríður Matharel er akureyrsk listakona sem sérhæfir sig í tónlist en útskrifaðist með stúdentspróf af listnámsbrautinni í Vermenntaskólanum á Akureyri vorið 2025 og hefur haldið áfram að skapa síðan. Hún fær innblástur úr náttúrunni, íslenskri og franskri, og lífinu í henni og myndunum úr spilinu Dixit.
Öll velkomin!