ÞRYKKT BLÆBRIGÐI – ÍSLENSK GRAFÍK

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á sýninguna Þrykkt blæbrigði sem opnar í Deiglunni, föstudaginn 28. ágúst kl. 18:00-20:00.
Félagið Íslensk grafík stendur fyrir samsýningu félagsmanna í Deiglunni á Akureyri í tilefni Akureyrarvökunnar 2026. Þrjátíu og þrír grafíklistamenn taka þátt í sýningunni og endurspeglar hún fjölbreytni grafíklistar á Íslandi í dag.
Sýningin er liður í hlutverki Íslenskrar grafíkur að efla grafíklist á Íslandi og skapa vettvang fyrir félagsmenn til að kynna verk sín. Á sýningunni má sjá verk unnin með fjölbreyttum aðferðum grafíklistar, meðal annars steinþrykki, silkiþrykki, þurrnál og ætingu.
Opnunartími
28. ágúst. Föstudagur: 18:00-20:00 (Opnun)
29. ágúst. Laugardagur: 12:00-20:00
30. ágúst. Sunnudagur: 12:00-15:00
Öll velkomin!