Hringrás lífsins – Sigríður Stefanía Stefánsdóttir

Þann 31. júlí opnar fyrsta einkasýning Sigríðar Stefaníu Stefánsdóttur í Deiglunni. Opnunartími sýningarinnar er frá kl. 16:00 – 20:00 á föstudeginum og frá 12:00 -18:00 laugardag og sunnudag. Á laugardeginum verður hægt að kaupa lífrænan kakóbolla af Agndofa hönnunarhúsi og einnig verður tónheilun milli kl. 15:00 – 16:00.
Sýningin er áminning um að fegurð býr ekki aðeins í því sem við horfum á, heldur í því sem vaknar innra með okkur þegar við gefum okkur tíma og athygli. Í gegnum lit, form og nærveru er áhorfandanum boðið að tengjast sinni innri fegurð og leyfa gleðinni og kærleikanum að koma fram á sinn eigin hátt.
Sigríður Stefanía var á listnámsbraut í Verkmenntaskólanum á Akureyri og lærði einnig leirlist.
Öll hjartanlega velkomin!