Danielle Robitaille

Síðustu helgina í maí opnar gestalistamaður mánaðarins – Danielle Robitaille – sýningu sína.
Tilfinningar eru kjarninn í listferli hennar og hún nálgast þetta viðfangsefni í gegnum gagnalist (e. data art) og tæknilist (e. procedural art), tvær aðferðir sem eru vísvitandi tilfinningalausar. Þessi rannsókn fer aðallega fram í formi stafrænna verka prentaðrar á pappír og skúlptúra.
Frá árinu 2020 hefur hún safnað gögnum varðandi tilfinningalegt ástand sitt, sem hún síðan þýðir yfir í stafrænt myndverk. Í gegnum þetta ferli leitast hún ekki svo mikið við að yfirfæra sína persónulegu reynslu heldur að miðla hinu óljósa eðli tilfinninga, sem gerir skynfærunum kleift að þekkja óendanlegan breytileika þeirra.
Meðan Danielle dvelur á Akureyri vill hún kanna nýjar leiðir til að þýða tilfinningalegt ástand með því að nota reipi, þráð og önnur trefjaefni. Þetta verður rannsókn á því að smíða nýtt sjónrænt tungumál. Markmiðið er, eins og í öllum hennar verkefnum, að skapa hlut sem er sjónrænt áhugaverður, en hefur einnig undirliggjandi merkingu.
Danielle býr og vinnur í Montréal, Québec, Kanada. Árið 2023 lauk hún meistaragráðu frá Háskólanum í Québec í Montréal. Hún hefur tekið þátt í nokkrum gestavinnustofum, þar á meðal í Finnlandi, þar sem hún hlaut rannsóknarstyrk frá Kanadísku listaráðinu.
Öll velkomin!