Í ÁGRIPI – TOGGI
Í þessari seríu lágmynda fangar Toggi / Þorgeir Ólason óræðar tilfinningar og upplifanir úr eigin lífi. Tilfinningar sem margir kannast við. Yfirborðið er fágað, slétt og fellt eins og nútíma maðurinn vill vera séður, lætur eins og ekkert sé að meðan allt er iðandi undir niðri, rétt eins og í myndverkinu þar sem allt ólgar og kraumar undir yfirborðinu óhlutbundin mynstur djúpstæðra tilfinninga eins og aðdáunar, ástar, fyrirgefningu, samúðar, virðingar, trausts, uppgjafar, skammar, sektar og reiði. Tilfinningar sem birtast oft í logni en stundum í hávaða roki samfélagsins og þá sem raunveruleg andleg og líkamleg áreynsla einstaklings i nútímanum. Sterk áminning um að við erum skyld hvort öðru í gegnum tíma og rúm og höfum tengsl sem krefja okkur um mannlega þáttinn, að vera tengd.
Fjölmörg gegnsæ lög í þessum lágmyndum lýsa upp þann tímalausa, óstöðuga og hverfula tilfinninga heim sem hver og einn býr við. Allt frá himneskum, draumkenndum og yfirskilvitlegum kröftum, til djarfra, ákafra, ríkulegra áferða, þar sem sérhver lína, litur og form endurspeglar markviss áform um að miðla tilfinningalegu andrúmslofti líðan eða upplifun. Orkan sem vekur andlegar hugsanir okkar og þjónar sem hugleiðandi ígrundun af upplifun eða þeirri skynjun sem við verðum fyrir. Tilfinningar og tilfinningalegar upplifanir sem sveiflast á milli þess að vera lágværar eða háværar, bæði þægilegar og óþægilegar tilfinningar. Það eru þessar upplifanir sem listamaðurinn sækir sköpunarkraft sinn í og eru þessi myndverk afrakstur af þeirri sjálfsvinnu.
Öll verkin á sýningunni eru unninn á kopar, þar sem listamaðurinn beitir ætingu eða patineringu til að framkalla fjölbreytt óhlutbundin form, liti og línur.
Toggi / Þorgeir Ólason hefur haldið fjölda einkasýninga hérlendis og erlendis en einnig tekið þátt í samsýningum. Alla tíð hefur hann fengist við myndlist og hefur efnið oftar en ekki fengið að stjórna ferðinninni í listsköpun hans. Samhliða myndlist hefur Toggi sinnt öðrum störfum. Hann starfaði lengi sem leikmyndahönnuður bæði í leikhúsi og kvikmyndagerð, en einnig við auglýsingar. Lengst af hefur hann starfað við ráðgjöf, aðstoðað fólk við að ná tökum á lífi sínu. Oftar en ekki hefur sú vinna með fólki verið uppspretta að þeim hugmyndum sem eignast líf í hans list.
Sérstök sýningaropnun verður mánudaginn 6. júlí í Deiglunni frá 13:00-20:00 og þú ert velkomin !
Aðrir opnunartímar:
7. – 16 júlí 13:00 – 17:00