MYNDLÍKING TRJÁNNA | JORIS RADEMAKER

Joris Rademaker opnar sýninguna Myndlíking trjánna föstudaginn 16. október kl. 19:00–21:00 í Deiglunni. Sýningin stendur til og með sunnudagsins 18. október og er opin daglega frá kl. 14-17.
Til sýnis eru bæði eldri og ný verk unnin út frá lífrænu efni. Trén með sínar rætur, stofn, börk og greinar hafa verið innblástur fyrir svarthvítar gvass myndir. Þrívíðu verkin eru samsetningar úr mismunandi lífrænum efnum og fundnum hlutum. Sýningin samanstendur af samtali á milli tvívíðra og þrívíðra verka.
Í gegnum árin verður Joris stöðugt meira meðvitaður um þessa djúpu þrá í náttúrunni til þess að vaxa. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt.
Joris er hollenskur myndlistamaður sem hefur verið búsettur og starfandi á Akureyri í rúm 30 ár. Hann nam myndlist í Tillburg og í Enschede í Hollandi. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar m.a. Í Hollandi, á Íslandi, í Svíþjóð og í Þýskalandi. Einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga, s.s. Í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur.