Gilfélagið auglýsir eftir þátttöku í List- og handverksmessu
Gilfélagið auglýsir eftir þátttöku lista- og handverksfólki í List- og handverksmessu félagsins
1. og 8. desember 2018
Nú er að hefjast árlegur viðburður Gilfélagsins og þá er tækifæri fyrir listamenn og handverksfólk að koma list sinni og handverki á framfæri í húsnæði okkar Deiglunni í Listagili á Akureyri laugardagana 1. og 8. desember kl. 13 – 17. 8. des. er Gildagur
18 borð eru í boði og hvert borð kostar 2.500 kr. fyrir félagsmenn og 3.500 fyrir aðra.
Skráningarfrestur er fyrir 24. nóv. fyrir fyrsta desember, en 30. nóv. fyrir seinni daginn 8. desember.
Hægt er að skrá sig með tölvupósti á netfangið, gilfelag@listagil.is
Frekari upplýsingar veitir formaður Gilfélagsins Guðm. Ármann í síma 864-0086
Stjórn Gilfélagsins