FROSTIÐ KOM ÞEGAR ÞÚ FÓRST | VERA PÉTURSDÓTTIR

Vera Pétursdóttir opnar sýninguna Frostið kom þegar þú fórst þann 28. nóvember kl. 15.00.
Vera Pétursdóttir er 19 ára gömul, nýútskrifuð frá MA og þetta er hennar fyrsta listsýning. Vera hefur haft mikinn áhuga á listsköpun síðan hún var lítil og fékkst til dæmis við ýmiskonar saum, föndur og fleira. Síðar þróaðist áhugi hennar á myndlist og fór hún að gera ýmsar tilraunir á þeim vettvangi. Abstraktið átti fljótlega hug hennar og í verkunum má finna hin ýmsu form, liti og mynstur og hefur hún áhuga á því að finna út hvernig litir og form geta skapað hreyfingu og vakið upp mismunandi tilfinningar án þess að þurfa að túlka eitthvað á einn ákveðinn máta. Einnig hefur hún mikinn áhuga á tónlist og notar hún áhrifamátt tónlistarinnar til að móta verkin, hvaða litir enda á striganum , hvernig verkin þróast og jafnvel titlarnir verða.
Sköpunarferlið er það sem skiptir máli – að standa fyrir framan hvítan striga og fram fyrir óendanlegum möguleikum. Hún hefur einbeitt sér að myndlistinni síðastliðin þrjú ár og selt nokkuð af verkum á netinu.
Einnig verður opið sunnudaginn 29. nóvember milli 15:00 – 18:00. Öll velkomin!