Myndlistarsýning til heiðurs Billu opnar í Deiglunni
Næstkomandi föstudag, 10. nóvember kl. 16.00, opnar myndlistarsýning í Deiglunni og Mjólkurbúðinni á Akureyri.
Sýningin er einstök en verkin sem eru til sýnis eru öll verk áhugahóps myndlistarfólks sem allt á það sameiginlegt að hafa sótt námskeiðið Fræðsla í formi og lit hjá myndlistarkonunni Bryndísi Arnarsdóttur sem lést fyrir aldur fram árið 2022.
Myndlistarhópurinn Gellur sem mála í bílskúr varð einmitt til í framhaldi af einu námskeiðanna hjá Billu og kom sú hugmynd upp hjá hópnum að setja upp myndlistarsýningu í minningu hennar og fá einnig til liðs fleiri nemendur Billu. Alls verða um 40 manns með myndir á sýningunni.
Billa var menntaður myndlistarmaður og með meistaragráðu í kennslufræðum listgreina. Hún stofnaði m.a. Listfræðsluna, myndlistarskóla fyrir almenning og var frumkvöðull í að fá viðurkenningu á einingarbæru myndlistarnámi með námskeiðinu.
Við þessi tímamót mun fjölskylda Billu setja á laggirnar styrktarsjóð til minningar um hana og mun helmingur af öllum seldum verkum á sýningunni renna í sjóðinn en hugmyndin með sjóðnum er að styrkja sérstaklega konur sem vilja fara í formlegt nám í sjónlistum.
Listrænn stjórnandi sýningarinnar er Guðmundur Ármann myndlistarmaður en Billa og Guðmundur Ármann voru samstarfsfélagar og vinir og áttu m.a. stóran þátt í að byggja upp öfluga myndlistardeild við Verkmenntaskólann á Akureyri auk þess sem mikill fjöldi áhugafólks um myndlist hefur sótt hjá þeim námskeið í gegnum tíðina.
Norðurorka og KEA styðja við uppsetningu sýningarinnar og eru allir hjartanlega velkomnir í Deigluna og Mjólkurbúðina um næstu helgi.
Sýningin stendur yfir dagana 10. – 12. nóvember.