Elísabet Scrooge – alein um jólin, nemendasýning Draumaleikhússins.
Elísabet Scrooge – alein um jólin, nemendasýning haustannar Draumaleikhússins verður sýnd í Deiglunni föstudag 6. desember, til sunnudags 8. desember næstkonmandi.
Leikritið er ný leikgerð eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Pétur Guðjónsson byggð á sígildri sögu Charles Dickens um nískupúkann Scrooge.
Sýningin er sannkölluð fjölskyldusýning fyrir 5 ára og eldri. Góð skemmtun á aðventunni þar sem boðskapur jólanna fær sannarlega að njóta sín.
Sýningartímar eru:
6.desember kl.18:00 og 20:00
7.desember kl.14:00 og 17:00
8.desember kl.14:00 og 17:00
Húsið opnar hálftíma fyrir sýningu.
Sýningartími er 45 mínútur.
Sýnt verður í Deiglunni, listagilinu Akureyri.
Miðaverð: 2900
Miðasala á tix.is