MINNI LEIRSINS – Elín Berglind Skúladóttir

Þann 8. ágúst opnar sýning á leirmunum Elínar Berglindar Skúladóttur sem ber heitið ‘Minni leirsins’ klukkan 14:00. Sýningin verður opin bæði laugardag og sunnudag frá 14:00 – 17:00.
„Þetta er bara leir.“
Þessa setningu segi ég oft við nemendur mína.
Það gerist ekkert slæmt þó að útkoman verði ekki eins og við ætluðum. Stundum verða einmitt áhugaverðustu verkin til þegar við sleppum tökunum, leyfum efninu að leiða okkur áfram og tökum óvæntu niðurstöðunum opnum örmum. Sú hugsun hefur fylgt mér í vinnunni með leirinn og í undirbúningi fyrir þessa sýningu.
Minni leirsins – er afrakstur margra mánaða tilrauna með leir, glerunga og önnur efni – efni sem ég safna, blanda og rannsaka. Hvert verk er samtal milli hugmyndar, efnis og elds. Sum urðu nákvæmlega eins og ég sá þau fyrir mér. Önnur urðu eitthvað allt annað.
Og kannski eru það einmitt þau sem hafa mesta sögu að segja.
Instagram @rockspringspottery
Öll hjartanlega velkomin!