DAGLEG KYNNI
Sýning Gestalistamanns Gilfélagsins í maí Vicente Fita Botet opnar á föstudaginn 30. maí kl 19.00 í Deiglunni.

Sýningin verður opin föstudag 30. maí frá 19 – 21 og laugardag 31. maí frá 14 – 15.45, ath. Sýningin hangir uppi meðan á tólleikum MÝR tríós stendur, sem hefjast kl. 16.00 þann 31.
Listamaðurinn um verkefnið:
Meðan á dvöl minni hér á Akureyri hefur staðið hef ég haldið stefnu í listsköpun mnni. Ég hef auðgast af myndunum sem ég safna þegar ég kanna nýtt umhverfi með myndavél að vopni.
Í Deiglunni mun ég kynna nýleg verk á pappír sem og frumsýni tvö myndbandsverk, annað gert í Rotterdam og hitt hér, utan við sýningarsalinn mun ég að gera tímabundinn skúlptúr úr fundnu efni sem inngrip í almannarýmið.
Sýningin er öllum opin og enginn aðgangseyrir, á opnun verður boðið upp á léttar veitingar og spænskt góðgæti.
Frekari upplýsingar um Vicente Fita Botet. Information about the artist in English below