AUGNABLIK – FALLEGA LÍF | KRISTÍN RAGNARS

Þann 20. nóvember opnar sýning Kristínar Ragnars, Augnablik – fallega líf, í Deiglunni. Endilega lítið við!
Um sýninguna
Í listsköpun sinni dregur hún fram þá fegurð sem oft fer framhjá okkur í hversdagslegum augnablikum, sem við upplifum og festir þau á mynd. Stíll stíllin er abstrakt-raunsæi. Verk sýningarinnar sýna augnablik í okkar fallega lífi og mótívið eru hendur. Hún tekur ljósmyndir af höndum sem hún vinnur svo áfram með í ferlinu. Hún nýtir abstrakt-bakgrunn til að undirstrika viðfangsefnið, sem er raunsætt. Þannig nær boðskapurinn betur í gegn og fær aukið vægi í einfaldri en raunsærri mynd sem hvílir ofan á abstrakt-grunninum. Í verkum sínum notar hún kol, pappírssniðmát sem hún gerir sjálf, klippimyndir, ýmis bindiefni, spreymálningu, akrýlmálningu og olíumálningu í lögum.
Um myndlistarkonuna
Myndlistarkonan Kristín Ragnars er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Kristín byrjaði á unga aldri að teikna og hefur tekið mörg námskeið í tengslum við myndlist. Hún fór í Myndlistar og handíðaskóla Íslands og lauk fornámi þaðan 1998. Þá tók hún langt hlé meðan hún var að ala upp bornin sín, en tók námskeið við og við í gegnum tíðina.
Árið 2024 fór hún í myndlistarnám í Myndlistarskóla Akureyrar og tók aðeins eitt ár þar sem skólanum var lokað haustið 2025. Það leiddi til þess að Kristín ákvað að fara í fjarnám í myndlist frá Milan Art Institute árið 2025-2026 í “Mastery Program” sem er um 2ja ára nám í myndlist.
Í verkum sínum leitast Kristín við að tjá það sem er fallegt í jafnvel smáum hversdagslegum andartökum og lyftir því upp. Hvort sem það er náttúra, fólk eða litlir hlutir sem við í hversdagsleikanum gleymum og við getum öll verið þakklát fyrir að upplifa.
