Freya Björg Olafsson
Gestalistamaður mánaðarins, Freya Björg Olafsson, opnar sýningu á eldri vídeóverkum laugardaginn 25. apríl klukkan 15:00 og verður með óformlegan lifandi flutning klukkan 16:00.
Freya hefur unnið að nýjum gjörningi í gestavinnustofunni sem hún allar „Body Double“, þar sem hún notar MoCap-tækni og kannar vísvitandi mis-notkun á gervigreindartólum. Freya er þarna að víkka rannsóknir sem hófust fyrir ári síðan, þegar hún tók þátt í viðburði sem snerist um notkun gervigreindar í samhengi við kóreógrafíu. Áhuga hennar á notkun rauntímagervigreindar í lifandi gjörningum, þar sem hún notast einungis við vefmyndavél, má rekja til svokallaðra VTubers, sem teikna upp stafræna manngervingu í rauntíma til að skapa skáldaðar persónur. Stafræn ímynd og flutningur hefur verið kjarninn í hennar listsköpun síðan 2006.
Sjá meira á: www.freyaolafson.com
Hlökkum til að sjá sem flest!