Kattahverfið – Arna G. Valsdóttir & Aðalsteinn Þórsson

Kattakverfið, myndlistarsýning Örnu G. Valsdóttur og Aðalsteins Þórssonar opnar í Deiglunni núna 11. apríl og stendur til 19. apríl.
Sýningin er endurlit á vinnustofudvöl þeirra á vegum The Chinese European Art Center í borginni Xiamen í Kína árið 2025 og um leið samþætting við þeirra séríslenska hversdagsleika og amstur.
Á þennan hátt er um að ræða framhald á verkefni listafólksins og sýningu þeirra í galleríi CEAC í Xiamen fyrir ári síðan. Þar unnu þau hvort á sinn hátt innsetningu út frá hversdeginum: Aðalsteinnn með söfnun afganga lífs síns, umbúða og öðru sem ekki eru not fyrir lengur – þess sem við látum hverfa úr tilverunni en hættir ekki að vera til. Arna safnaði hins vegar hverfulum augnablikum í myndbandstökuvél sína sem hún síðan endurnýtir í hreyfimyndir. Á þennan hátt flytur hún liðin augnablik úr einu heimshorni yfir í annað.
Á vissan hátt má segja að bæði Aðalsteinn og Arna vinni með afganga eða það sem gengur af í lífinu.
Bæði luku Arna og Aðalsteinn framhaldsnámi í myndlist frá hollenskum listaháskólum, Arna seint á níunda áratug síðustu aldar og Aðalsteinn á þeim tíunda. Þau eiga fjölbrettan listferil að baki sem spannar áratugi.
Öll eru velkomin og ókeypis inn.