UNLIMIT YOURSELF
Gestalistamaður Gilfélagsins í maí Mara Mars, opnar föstudagskvöldið 24.maí kl. 19.30 sýningu sína í Deiglunni og stendur opnunin til 21.30.
Sýningin verður opin helgina 25. -26. maí frá kl. 14 -17 báða dagana.
Hér á Akureyri verð ég innblásinn af fallegu hraunlandslaginu, fjöllunum, álfum, tröllum, sjónum – þessi djúpu áhrif hafa leitt mig til að skapa ný verk eins og
Svart & Hvítt
Hef séð marga fjallshryggi þakta snjó til hálfs og munstrið milli snjósins og hraunsins er svo fallegt – fullt af töfrandi fígúrum sem gleðjast. Ég á nokkrar myndir málaðar eftir ljósmyndum sem ég tók – en náttúran er alltaf miklu tilkomumeiri sjálf.
Við höfum val um hvort við sjáum svart eða hvítt.
Silfur
Ljósið á Íslandi er svo sérstakt og ég nota fyrir það silfurpappír.
Þetta verk er tileinkað álfum, tröllum og öllum náttúruöndum sem búa saman í friði og hamingju.
Mara Mars f. 10.11.1949 í Rüti, ZH í Sviss.
Sjálfstætt starfandi myndlistarmaður frá 1979.
Vann fyrir Esther Matossi-Foundation, Zurich í Sviss 1999. Meðlimur í Visarte, myndlistarfélaginu í Sviss frá árinu 2010. Vann rétt til vinnustofudvalar í Cité Internationale des Arts, París, Frakklandi 2015. Vinnustofudvalir í New York, BNA. Býr og starfar í Dietikon í Sviss.
Mara Mars
Um mig: „Ideas are like shooting stars“
Margvíslegur tjáningarmáti- Enginn einn stíll – Ljósmyndun, innsetningar, málun, útsaumur, textíll, leður, veggverk og vídeó eru miðlarnir sem ég vinn með. Ég vinn gjarnan innsetningar fyrir ákveðinn stað í tilteknu þema. Allt vekur áhuga minn sem umlykur mig og ég vinn verkin mín gjarnan í seríum.
Hér finnur þú meiri upplýsingar um Mara Mars
Sýnishorn af mnýjum verkum: