NÚNA – Regína Gunnarsdóttir

Laugardaginn 15. ágúst klukkan 14:00 opnar Regína Gunnarsdóttir sýninguna NÚNA í Deiglunni. Opið verður laugardag og sunnudag til 17:00. Öll velkomin!
NÚNA
Staldra við Anda
Vera
Njóta
Leika
Taka eftir því sem er – hér og nú
„Þegar ég skapa finn ég frið og ró, en um leið kraft og orku. Tíminn gleymist, ég fylgi flæðinu og leyfi mér að vera í augnablikinu.
Náttúran hefur lengi veitt mér innblástur og þar finn ég svo mikið af þessum sömu tilfinningum – kyrrðina og kraftinn. Þar gef ég mér rými til að staldra við, horfa, hlusta, taka eftir og upplifa mitt NÚNA hverju sinni.
Við sjáum ekki öll það sama. Við finnum og upplifum hvert á okkar hátt – og eigum okkar ólíku NÚNA.
Verkin á sýningunni eru mín ólíku NÚNA – augnablik, upplifanir og tilfinningar sem hafa orðið að ólíkum verkum. Við gerð sýningarinnar leyfði ég ferlinu að leiða mig áfram, prófa nýjar leiðir og sjá hvert þær leiddu mig.
Með NÚNA langar mig að bjóða þér að sjá og upplifa mín NÚNA.“
Um listamanninn
Regína Gunnarsdóttir hefur fjölbreyttan bakgrunn í námi og starfi, bæði á akademískum vettvangi og í myndlist. Myndlist og sköpun hafa þó fylgt henni alla tíð en á síðustu árum hefur hún gefið eigin listsköpun sífellt meira rými.
Regína hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í ýmsum samsýningum. Hún er með vinnustofu í Þúfu 46, samfélagi listamanna á Akureyri, þar sem hún vinnur að eigin listsköpun.