VATNSLITAHÁTÍÐ ÍSLANDS 2026 Í LISTAGILINU

Vatnslitahátíð Íslands verður haldin á Akureyri 10.-15. september. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu fimmtudaginn 10. september kl. 17. Sýningin stendur síðan til 27. september.
Til landsins koma fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vatnslitum en þeir eru Björn Bernström frá Svíþjóð, Nicolás Lopez frá Perú, Julia Ustinovich frá Póllandi, Prafull Sawant frá Indlandi og Julia Barminova frá Portúgal. Gilfélagið er einn af samstarfsaðilum hátíðarinnar og verða Sawant, Barminova og Ustinovich með námskeið í Deiglunni en færri komast að en vilja því uppselt er á öll námskeið sem haldin verða þessa daga í tengslum við Vatnslitahátíð Íslands.
Miðar á hátíðina sjálfa seldust upp fyrr í vikunni en á dagskrá eru, auk sýnikennslu í Listasafninu og námskeiða, meðal annars vettvangsferðir til Mývatns og á Svalbarðseyri þar sem málað verður undir berum himni ef veður leyfir. Einnig leiðir pólski málarinn Daria Kudlenkova skissuferðir um miðbæjarsvæðið sem líklega munu vekja athygli vegfarenda.
Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.watercolour.is.

