Hún – Danssýning
Fimmtudagurinn 17. október kl. 21:00.
Önnur sýning á dansverkinu Hún. eftir Ólöfu Ósk Þorgeirsdóttur þar sem sóttur er innblástur í álit samfélagsins á sjálfsöryggi ungra kvenna.
Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir varðandi álit samfélagsins á því að konur eigni sér sína eigin kosti, styrk og möguleika, og því ber að fagna. Við þurfum ekki lengur að láta eins og það komi okkur á óvart þegar okkur er hrósað. Við vitum okkar eigin hæfni.
Miðinn kostar 1000 kr og því miður er ekki posi á staðnum, en það er hægt að borga með Aur.
Dansarar:
Antonía Hölludóttir
Arna Sif Þorgeirsdóttir
Birta Ósk Þórólfsdóttir
Erla Vigdís Óskarsdóttir
Karen Birta Pálsdóttir Maitsland
Ólöf Ósk Þorgeirsdóttir
Unnur Lilja Arnarsdóttir
Sunneva Kjartansdóttir
Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Gilfélagið