DANSIBALL Í GÖNGUGÖTUNNI

Gilfélagið á Akureyri býður Akureyringum og öðrum gestum upp í dans og fjör við upphaf Listasumars 2026, þar sem göngugötunni okkar verður breytt í dansgólf!
Drífið fram dansskóna og takið þátt í alvöru balli þar sem Magni, Erna og co. spila fyrir dansi, en þau eru þekkt fyrir að halda uppi alvöru stuði! Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 25. júní klukkan 20:00.
Öll hjartanlega velkomin!
Þessi viðburður er styrktur af Akureyrarbæ, Norðurhjálp, Rauða Krossinum og Hertex.
