SUMARSEREMÓNÍA

Við bjóðum ykkur innilega velkomin í kakóseremóníu með Rósu Maríu Stefánsdóttur miðvikudaginn 22. júlí kl. 19:30 Húsið opnar 18:30.
Rósa María hjá Hjartans tónum, í samstarfi við fjölllistafólkið Stefán Elí og Esha Fae og Sigrúnu Ágústu olíuunnanda, bjóða ykkur að koma og eiga með okkur notalega kvöldstund í Deiglunni.
Þau munu bjóða upp á seremóníal kakó eða te. Stundin verður svo blanda af hugleiðslu, öndun, söng, töfrandi og heilandi tónum, léttu dansflæði og slökun.
Einnig verða þau með hreinar ilmkjarnaolíur til að gera stundina enn áhrifaríkari.
Tækifæri til að vera og finna og hlusta og njóta.
Tækifæri til að hlúa að sér, finna innblástur, orku, kraft, losun, hvíld og kyrrð.
Seremónían sjálf hefst kl 19:30 en við opnum húsið kl 18:30 og verðum með markað með fallegum vörum frá ýmsum heimshornum og sölu á ilmkjarnaolíu sem var sérhönnuð fyrir viðburðinn. Það er því kjörið að mæta snemma, spjalla, skoða og njóta samveru áður en við göngum svo inn í meiri kyrrð eða förum meira inn á við.
Eftir athöfn verður svo aftur tækifæri til að kíkja á markaðinn og spjalla.
SKRÁNING: í skilaboðum til Rósu Maríu eða á hjartanstonar@gmail.com
UPPHÆÐ: 5.000kr
*Gott er að koma á léttan maga
*Koma með bolla fyrir kakó/te
*Koma með vatnsflösku
*Eigin púða, dýnu og teppi ef vill
*Dagbók og penna
https://www.facebook.com/events/s/sumarseremonia/1612282383751167/?mibextid=wwXIfr&rdid=MN6mQ38a5tKrLHR1&share_url=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Fshare%2F1BeQEVjThx%2F%3Fmibextid%3DwwXIfr#