Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Gestavinnustofu Gilfélagsins árð 2026

Gilfélagið auglýsir eftir umsóknum til dvalar í gestavinnustofu Gilfélagsins. Um er að ræða mánaðar eða tveggja mánaða dvalir á tímabilinu janúar til og með desember 2026. Hvert tímabil hefst fyrsta dag mánaðar. Gestavinnustofan er fullbúin íbúð með vinnustofu sem hentar einum listamanni eða pari. Innangengt er í viðburðarrýmið okkar Deigluna þar sem er í boði að halda sýningu eða annarskonar viðburð í lok dvalar eða eftir samkomulagi. Íbúðin er staðsett í Kaupvangsstræt/ Listagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem er stutt að sækja alla helstu þjónustu svo ekki sé minnst á fjölbreytt menningarlíf. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna og umsóknarferlið má nálgast hér https://listagil.is/?page_id=1119