Linda Berkley
Gestalistamaður Gilfélagsinns í apríl 2025
Linda Berkley
„Ég er enn djúpt snortinn af kynningu minni af sláandi umfangi og stærð íslensks landslags/sjávarlandslags/himinlandslags. Áhrifum þess á íslenska menningu og listræn sjónarhorn, sem ég upplifði sem gestalistamaður á NES vinnustofum á Skagaströnd fyrir tíu árum. Mig hefur lengi dreymt um að snúa aftur.
Um þessar mundir vinn ég með ‘Rozome’, ‘Roketsuzome’ og ‘Katazome’ (japanska tækni) og náttúruleg litarefni; og kanna útgeislun og innbyrðis tengsl lita, jafnvægi í hönn sem er óbundin vestrænu sjónarhorni eða línugæðum. Ég byggi á sterkri teikningu, tilraunakenndri Rozome-tækninni og vatnslitarannsóknum. Ég sé rannsókn mína skila sér í sjónrænum mynstrum, táknum og tjáningu; samsvörun milli hinns innri heims og þess ytri.“
Linda Berkley er myndlistarkona sem býr við norðvesturströnd Kyrrahafsins með eiginmanni sínum og ketti, vinnur á vinnustofu sinni og í náttúrunni, www.lindaberkley.com, til að fagna sköpunarferlinu og krafti athugunarinnar.
Linda lét af störfum sem kennari eftir 27 ár sem háskólalistprófessor. Menntunarbakgrunnur hennar felur í sér BFA Museum School of Fine Arts, Boston, MFA University of Arizona og vísindaleg námsskírteini myndskreytingu frá háskólanum í Washington. Hún hefur sótt gestavinnustofur í Japan, DrawInternational Frakklandi, Vermont Studio School og Anderson Ranch, Colorado.







