Veruleikir
Sýning Úlfs karlssonar opnar föstudaginn 20. september kl 16.
Föstudaginn 20. september verður opnuð í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri sýning á teikningum myndlistarmannsins Úlfs Karlssonar.
Úlfur útskrifaðist frá Valand, Listaháskólanum í Gautaborg árið 2012. Síðan hefur hann haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og víða um Evrópu, og verk eftir hann má finna í einkasöfnum safnara, m.a. á Íslandi, í Austurríki og í Svíþjóð.
Úlfur er þekktastur fyrir málverk í ofurstærðum en á sýningunni í Deiglunni eru 29 teikningar, stundum skissur að stærri verkum, málaðar á árinu.
Í sviðsmyndum seríunnar Do not Disturb er leitað í svefnherbergi einræðisherra, t.d. Hoxha, Napóleons, Pútíns og Stalíns því eins og segir í sýningartexta þá erum við öll viðkvæm þegar við sofum og þó þú sérst umkringdur þeim sem eiga að verja þig þá ertu aldrei viss, getur ekki treyst hundrað prósent.
En þarna eru líka litríkar sviðssetningar á Veruleikunum og búningar og bílar í misjöfnu ásigkomulagi.
Nánari upplýsingar um listamanninn má finna á www.ulfurkarlsson.com
Sýningin verður opin laugardag 21. september 15-19, og sunnudaginn 22. september 13-17