StartStudio í Deiglunni
Unnur Stella opnar sýningu sína í Deiglunni laugardaginn 10. ágúst kl. 17.00.
Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 11. ágúst frá 15 – 18, aðeins þessi eina sýningarhelgi.
Unnur Stella Níelsdóttir er listakona frá Akureyri. Ástríða hennar fyrir list og hönnun hefur leitt hana til að stunda nám í list og keramik í Flórens, Ítalíu, og hönnun í Marbella, Spáni. Einnig hefur hún unnið á ýmsum stöðum, eins og New Orleans í Bandaríkjunum og Malmö í Svíþjóð.
Unnur Stella mun undir listakonu nafninu Start Studio halda sína fyrstu einkasýningu á Akureyri um helgina 10-11 ágúst!
Opnun verður á laugardeginum kl. 17 og búbblur í boði!
StartStudio gefur daglegu lífi og hversdagslegum hlutum nýtt líf í litríkum og fjörugum málverkum með áherslur á mismunandi þemu, eins og t.d. dýr í mannlegum aðstæðum og borðhald.
Verk StartStudio einkennast fyrst og fremst af gleði og forvitni sem smita út frá sér.