Hvalreki í Deiglu.
Uppákoma og sýning.
Opnunarhátíð Gilfélagsinns á listasumri 2024 fer fram næstkomandi fimmtudag þann 6. júní og hefst hún kl. sex eftir hádegi.
Frá kl 18 – 20 verður keyrð uppákoma í anda FLUXUS í Deiglunni. Gólfið er laust fyrir þá sem vilja láta ljós sitt skína. Ýmsir hafa boðað sig og aðrir eru líklegir en við við bíðum eftir hinum óvænta performer!!!
Á milli kl. átta og hálf tíu gefum við Listasafninu eftir sviðið, því þar verða frábærar opnanir en tökum svo upp þráðinn 21:30 og höldum áfram gigginu til kl. 23 eða rúmlega það.
Með spennandi dagskrá tónlist og skemmtilegheitum.
Samhliða dagskránni verður samsýning valdra myndlistarmanna sem stendur til sunnudags 9. júní og verður opin frá 14 – 17 föstudag til sunnudags.
Sýnendur eru: Aðalsteinn Þórsson, Arna G. Valsdóttir, Hjördís Frímann, Joris Rademaker, Kristján Helgason og Ólafur Sveinsson.
Aðgangur er ókeypis.