Dulheimaglóð
Í tilefni af ráðstefnu um álfa huldufólk opnar í Deiglunni föstudaginn 19. apríl kl 14, samsýning á verkum listafólks sem er næmara en gengur og gerist.
Í tilefni af ráðstefnu um huldufólk og álfa sem haldin er í Hofi 20. apríl, sýna fjórir listamenn í Deiglunni sal Gilfélagsins verk sem hafa skírskotun í huliðsheima.
Það eru þau Gréta Berg, Stefán Elí, Þóra Sólveig og Gló Inga.
Þóra Sólveig og Stefán Elí munu flytja tónlist á opnuninni fyrir fólk, álfa og hulduverur.
Opnað verður með kristalshljómum til heiðurs vættum og verum sem mun setja tóninn fyrir samveruna.
Sýningaropnun er föstudaginn kl 14:00 í Deiglunni og stendur sýningin alla helgina. Deiglunni 19.-21. apríl frá 14 – 17 báða dagana.
Hér undir má sjá sýnishorn af verkum þeirra Þóru Sólveigar og Gló Ingu: