Donat Prekorogja
Gestalistamaður Gilfélagsinns í mars.
Segist svo frá:
Ég heiti Donat Prekorogja og fæddist í Sviss árið 1999. Ég lauk BA námi í myndlist við HEAD Genève, þar sem ég vann með innsetningar og skúlptúr. Þar sem augu mín hafa alltaf dregist að hlutum á hreyfingu, er ég í leit að þeim augnablikum þegar tíminn er stöðvast í takti. Það er í ljóðinu sem streymir frá þessum frosnu augnablikum sem ég hef fundið löngun til að vekja upp mín eigin tímalausu augnablik, þar sem kraftur, titringur og breiting fangar athyglina og gefur hinu líflausa líf.
„Ég renni mér á frosinni gangstéttinni og reyni að koma mér einhvert en það er þýðingarlaust, ég renn bara og renn og húsin færast fram og hjá, þau eru öll eins, öll hrein, öll einföld, næstum óekta. Ég sá þau standa sem líkön, en því lengra sem ég renn því meira sé ég húsin hreyfast, gluggarnir hreyfast, girðingarnar þyrlast og hurðirnar snúast, ekkert er það sama; öll borgin er sem aflöguð í takti þessa óstöðvandi rennslis.“