Beta Gagga
Gestalistamaður Gilfélagsins í júní 2025

Elísabet Stefánsdóttir, er kölluð Beta og ólst upp á Akureyri, hún ein af fjórum systrum, gekk í Barnaskóla Akureyrar og Oddeyrarskóla en við lok grunnskólagöngu flutti hún til Reykjavíkur.
„ Ég vinn í mismunandi miðla sem hentar hverju verkefni fyrir sig og úr verður sjónrænn kokteill. Gamaldags veggfóðursmynstur ýtir undir nostalgíu og rifjar upp æskuminningar mínar á Akureyri. Lífræn form og vinsælustu hýbýlalitir ársins hafa verið viðfangsefni mín og á þessu ári hefur tónlist og textar blandast í þennan litríka kokteil. Í verkum mínum hef ég einnig reynt að komast nær kjarna mannlegra tilfinninga og tengsla. Tónlist, litir áferð og form sem færa mig aftur til æskuáranna. Ljúf fortíðarþrá sem minnir okkur á ástvini, mikilvæga atburði í lífinu eða hverfula stund sem mótað hefur sjálfsmynd okkar yfir ævina.”
Beta útskrifaðist með BA í myndlist frá LHÍ 2002, kennsluréttindi í myndlist frá LHÍ 2003, meistaragráðu, MT í list og verkgreinakennslu frá HÍ árið 2024 og kennir nú við Tækniskólann í Reykjavík og Hafnarfirði ásamt því starfar hún sem formaður félagsins Íslensk grafík og hefur gert frá árinu 2016.
Hún hefur haldið nokkra tugi samsýninga bæði hér heima og erlendis t.d: Danmörk, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Póllandi, Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu og víðar, en sýning hennar í Deiglunni verður 11. einkasýning hennar. Hún hefur haldið fyrirlestra og námskeið við Listaháskólann Jan Matejko Academi í Kraká, í Póllandi.

I work across various media suited to each project, creating a visual cocktail. A vintage wallpaper pattern in a circular form evokes nostalgia and brings back childhood memories from Akureyri. Organic shapes and the most popular home decor colors of the year have also been part of my work, and this year, music and lyrics have blended into this colorful concoction. A sweet longing for the past that reminds us of loved ones, important events in life, or transformative moments that have shaped our self-identity throughout the years.
www.betagagga.com
https://www.instagram.com/betagagga/




