Listaverkauppboð Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu
Laugardaginn 5. október í Deiglunni. Húsið opnar kl 14.00 með forsýningu á listaverkunum, en dagskrá hefst kl. 15.00
Hugmyndin að uppboðinu var listaverkagjöf til klúbbsins. Allur ágóði af uppboðinu rennur í sjóð til að styðja konur til listnáms og/eða listsköpunar. Verkefnið og styrktarsjóðurinn fékk nafnið LIST STYÐUR LIST.
Í tilefni af 40 ára afmæli Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu, verður boðið í afmælishóf og listaverkauppboð í Deiglunni, Listagilinu, þann 5. okt. 2024.
Við bjóðum öllum að koma og fagna með okkur.
Í hófinu verður Helenu Eyjólfsdóttir heiðruð, sem er einn stofnfélagi klúbbsins, stiklað verður á stóru í sögu félagsins í máli og myndum, og haldið verður listaverkauppboðið LIST STYÐUR LIST, undir stjórn Villa vandræðaskálds. Tónlistaratriði og í boði verða léttar veitingar. Aðgangur ókeypis.
Deiglan opnar kl 14.00 með forsýningu á listaverkunum, en dagskrá hefst kl. 15.00.
Listaverkin munu verða til sýnis hér https://www.facebook.com/profile.php?id=61565880215487 og á instagram, þar sem áhugasamir geta boðið í verkin. Í október verður auglýst eftir umsóknum um styrki og fer úthlutun fram í tengslum við 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi sem stendur frá 25. nóvember til 10. desember n.k.
Zontahreyfingin vinnur að því að bæta stöðu og lífsgæði kvenna hvar sem er í heiminum, bæði á eigin vegum og í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og frjáls félagasamtök. Zonta leggur sérstaka áherslu á valdeflingu ungra stúlkna og kvenna t.d. með því að styðja þær til náms og veita þeim þannig brautargengi til aukinna tækifæra og áhrifa í samfélaginu.
Zontaklúbbar vinna að þessum markmiðum með því að safna fjármunum sem renna bæði til verkefna innanlands og utan.
Dæmi um styrktarverkefni klúbbsins innanlands eru Aflið/Samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, Bjarmahlíð/miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Kvennaathvarfið, Rauði krossinn, Velferðarsjóður Eyjafjarðar, ennfremur styrkir til einstæðra mæðra til sumardvalar með börnum sínum.