Myndlistarverkstæði Gilfélagsins – Barnamenningarhátíð 2024
Hið klassíska myndlistarverkstæði Gilfélagsins á Barnamenningarhátíð verður laugardaginn 13. apríl frá 12 – 16.
Opið myndlistarverkstæði fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára í Deiglunni laugardaginn 13. apríl kl. 12:00 – 16:00.
Til boða stendur að mála, gera skúlptúra úr tré, pappír og endurunnu efni. Einnig verður hægt að þrykkja einþrykk og hæðarprent með einföldum efnum á pappír. Myndlistarmenn og kennarar leiðbeina.
Börnin geta komið og verið eins lengi eða stutt og þau vilja og prófað ýmsa miðla. Börnin geta tekið verkin með sér heim í dagslok.