Lista- og handverksmessa Gilfélagsins
Lista- og handverksmessa Gilfélagsins verður haldin í Deiglunni laugardaginn 10. desember kl. 13 – 20. Um er að ræða markað lista- og handverksfólks og þar mun kenna ýmissa grasa, myndlist, handverk, tónlist og ljóð. Upplagt að koma og versla eitthvað sniðugt í jólapakkann eða til að gleðja í skammdeginu.
Þátttakendur eru:
Adam Óskarsson, Guðmundur Ármann, Hrönn Einarsdóttir, Jónborg Sigurðardóttir, Kristín S. Bjarnadóttir, Jökull Guðmundsson, Rósa Kristín og Karl Guðmundsson, Valdís, Þóra Þorvaldsdóttir, Dóra Hartmannsdóttir, Agnes Arnardóttir, Fjóla Hilmarsdóttir, Þórhildur Örvars; Lára, Hjalti o.fl
Nánari upplýsingar veita
Guðmundur Ármann Sigurjónsson s. 864 0086 og
Sigrún Birna Sigtryggsdóttir s. 847 7488.
Stjórn Gilfélagsins