Xurxo Pernas Diaz
Gestalistamaður Gilfélagsins í desember 2023
Xurxo Pernas Díaz, er galisískur listamaður fæddur í Cedeira (1992) og útskrifaður myndlistarmaður frá háskólanum í Vigo.
Við listsköpun sína notar hann kvikmyndaljósmyndun og málunartækni eins og blek og gouache, hann kýs frekar einföld efni og snertinguna við þau til að geta fangað hratt í efnið það sem vekur áhuga hanns.
Þó að Xurxo kanni stöku sinnum landslag eða stemmingu (þegar dagar eru rólegir og ekkert virðist gerast) kýs hann frekar að lýsa daglegu lífi fólksins í kringum sig. Innblásin af Larry Clark og Nan Goldin hefur hann stundað þetta í mörg ár með háskólafélögum sínum og vinum. Málverkið gefur honum möguleikann að fanga allt sem er skilið eftir vegna síns óhlutbundna og ljóðræna eðlis, það sem ekki næst á ljósmynd.
„Verk mitt er bæði óþægilegt og kímið. Ævilöng skráning þess sem við tökum okku á hendur á hverjum degi – á því sérkennilega sem heldur okkur mannfólkinu uppteknu“. segir hann.