Päivi Vaarula
Gestalistamaður Gilfélagsins í apríl 2023
Päivi Vaarula er finnskur textíllistamaður sem vinnur í Gestalistavinnustofu Gilfélagsins í apríl 2023. Hún hefur lagt stund á textíllist í 40 ár og er með meistaragráðu í henni. „Ég þýði lífið á tungumál textílsins. Markmið mitt sem listamanns er að segja sögur og kanna líf konu. Ég endurspegla tilfinningar, næmi, hugmyndir og viðhorf inn í list mína. Hughrif mín geta breytist hratt og þá fylgi eðlishvötinni minni og nýtt inntak skapar nýtt verk.“
Þetta er fimmta listamannadvöl Päivi á Íslandi. Auk þess bjó Hún og kenndi verkgreinar og textíl í Hallormsstaðaskóla á árunum 2017-2019.
„Þann tíma sem ég hef starfað sem listamaður hef ég verið að rannsaka þær tilfinningarnar sem bærast undir húðinni. Fyrsta viðbragð var að ýta óþægilegum tilfinningum upp á yfirborðið og þá urðu þær ein af annarri jákvæðari og jákvæðari. Ég var að móta fiskaleður (roð) og lét efnið tala til mín. Þá þróuðust formin í höndum mínum út frá þeim hugsunum og hugmyndum sem ég hafði.“
Með vinkonu sinni Ragnheiði Björk Þórsdóttur, vinnur Päivi sýninguna „Teksti“ í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins dagana 14. til 23. apríl 2023. Auk þess að vera með einkasýningu „Undir Húðhinni“ í Deiglunni, 22. og 23. apríl frá kl 14 – 17.
Verkin í Deiglunni samanstanda af fiskaskinni sem hún hefur mótað. „Ég kanna atburði og tilfinningar úr lífi mínu sem hafa haldist undir húðinni.“ Segir Päivi Vaarula.