Auglýst eftir þáttakendum á Lista og handverksmessu Gilfélagsins!
Lista og handverksmessa Gilfélagsins verður haldin helgina 3. og 4. desember næstkomandi
Skráning í Lista- og handverksmarkað Gilfélagsins
Nú er tækifæri fyrir listamenn og handverksfólk að koma list sinni og handverki á framfæri í húsnæði okkar, Deiglunni í Listagilinu á Akureyri, helgina 3. – 4. desember kl. 12 – 17.
Skráningarfrestur er fyrir 28. nóv.
Þátttökugjald er kr. 2.500 fyrir Gilfélaga sem greitt hafa árgjald en 5.000 fyrir aðra. Hægt er að skrá sig í Gilfélagið á gilfelag@listagil.is. Hámarksfjöldi borða er 15, fyrstir koma fyrstir fá.
Hægt er að skrá sig á rafrænu eyðublaði með því að smella hér og fylla inn umbeðnar upplýsingar: nafn þátttakanda eða fyrirtækis/hönnunarlínu símanúmer og hverskonar varning þú verður að selja.
Messan verður í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 3. desember og sunnudaginn 4. Desember kl. 12 – 17. Við ætlumst til að þátttakendur séu allan tímann báða dagana, eða að einhver vakti borðin ef þarf að skreppa frá í lengri tíma. Deiglan opnar á laugardagsmorgni kl. 9 til að setja upp.