Skýrsla stjórnar starfsárið 2024 – 25
Lögð fyrir aðalfund 1. júní 2025.
Gilfélagið er nú að ljúka 34. starfsári sínu.
Við rekum Deigluna og gestavinnustofu hér í þessu húsnæði eins og áður.
Gilfélagið leitast við að styðja við og styrkja eftir megni grasrótarstarf menningarinnar, vaxtarsprotana sem eiga lítið undir sér og stunda skapand starf af ástríðu. Við erum opið félag án aðgreiningar. Við erum félag sjálfboðaliða og okkar styrkur ræðst verulega af óeigingjörnu starfi félaganna. Við höfum getað boðið húsnæðið undir viðburði á sérlega hagstæðum kjörum og stundum gjaldfrjálst og þannig viljum við hafa það.
– 46 opnir viðburðir voru skráðir í Deiglunni frá því í maí 2024 – júní 2025. Það er þó nokkur fjölgun frá fyrra ári.
– Gestavinnustofan var full nýtt á árinu. Eitt tímabil var notað af heimamanni og febrúar mánuður var ekki fylltur og var það ákvörðun stjórnar.
Varðandi húsnæðið er þó ánægjulegt að notkun einkaaðila í menningrstarfi hefur aukist og verið af mörgu tagi.
– Samlagið Sköpunarverkstæði hélt áfram námskeiðahaldi í Deiglunni uns það fluttist í eigið húsnæði um síðustu áramót.
- Draumaleikhúsið notaði Deigluna til æfinga síðastliðið haust og endaði með sýningum í nóvember.
- Sunnefa kjartansdóttir Sumarlistamaður Akureyrar fékk Deigluna til æfinga og hún setti up danssýningu 9. júlí.
- Boreal Screendance Festival var Deigluna eins og undanfarin ár.
- Northen Lights – Fantastic Film Festival com í Deigluna í fyrsta skifti í október .
- A! Gjörningahátíð var hér að venju í samstarfi.
- Námskeið á Barnamenningarhátíð, Guðmundur Ármann með vatnslitanámskeið, Rauðikrossinn í samstarfi, með samvinnu bútasaumsverkefni og svo mætti áfram telja.
Áfram höfum við verið samstarfsaðilar við stærri hátíðir, auk þess að vera samstarfsaðili Listasumars. Þar sjáum við um framkvæmd og stýrum viðburðum gegn dálitlum styrk frá bænum. Karnivala var haldin sem lokahátíð listasumars og þótti takast einstaklega vel.
Gestalistamenn okkar hafa tekið þátt í Þriðjudagsfyrirlestrunum sem haldnir eru í Listasafninu yfir vetrartímann í samstarfi við Listasafnið, MA og VMA.
Tveit handverksmarkaðir voru haldnir á vegum félagsins.
Við höfum fellt niður leigu af sýningum ungs listafólks eða listafólks í viðkvæmri stöðu. Það er alltaf álita mál hversu oft við getum leyft okkur að bjóða salinn án endurgjalds, en það er á hinn bóginn styrkur að geta það og mér hefur fundist að við eigum að gera það oft.
Við erum opin fyrir umsóknum og flokkum ekki umsækjandur, allir hafa sömu möguleika á að sækja um Deigluna fyrir menningarviðburði.
Í stjórn félagsins sitja: Aðalsteinn Þórsson formaður, Karólína Baldvinsdóttir ritari, Bryndís Símonardóttir gjaldkeri, meðstjórnendur Anna Richardsdóttir og Joris Rademaker. Varamenn eru Gillian Pokalo og Arna G. Valsdóttir.
Í úthlutunarnefnd gestavinnustofu sitja, Sóley Björk Stefánsdóttir, Ólafur Sveinsson og Aðalsteinn Þórsson.
Stjórnin hefur frá síðasta aðalfundi og haldið stjórnarfundi að meðaltali á þriggja vikna fresti.
Félagatalið stendur í 155 félaga sem greitt hafa árgjaldið. Einungs fáir taka þátt í starfi fyrir félagið og er það stöðug áskorun að stækka þann hóp.
Við viljum standa vörð um hugmyndina sem var mótuð 1991 um Listagilið sem mikilvægt kennimark í listasamfélaginu á Akureyri. Ekki síst að stuðla markvisst að eflingu grasrótarstarfs í listum og menningu. Starfs sem síður finnur sér farveg innann stofnananna.
Samningar við Akureyrarbæ?
Vid erum enn samningslaus við bæinn vegna húsnæðisins síðan 1. janúar 2023.
Samkvæmt þeim samningi borgar Gilfélagið mánaðarlega 35.000 kr til bæjarins mánaðarlega.
Það kvartar enginn undan lágri leigu en óöryggið er algert og fullkomlega óljóst með næsta dag, ábyrgð og skyldur í báðar áttir.
– Hvað langar okkur?
Er spurning sem ég læt eftir nýrri stjórn ég læt hér með af störfum sem formaður Gilfélagsins, eftir stjórnarsetu frá því 1017 og formennsku síðustu fjögur árin, óska ég nýrri stjórn alls hinns besta og er sannfærður um að Gilfélaginu blasir við björt framtíð.
Fyrir hönd stjórnar.
Aðalsteinn Þórsson
30. maí 2025.