Prentdagurinn mikli – Print day in May
Laugardagur 4. maí, 11.00 – 14.00
Deiglan salur Gilfélagsins, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri.
Print Day in May er árleg, alþjóðleg hátíð prentgerðar og grafíklistar sem fer fram fyrsta laugardaginn í maí.
Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn.
Á þessum degi gera tugþúsundir prentsmiða um allan heim prentverk og deila reynslu sinni með öðrum. Prentsmiðir og grafíklistamenn fagna Prentdeginum í prentsmiðjum, vinnustofum, eldhúsum, á ströndum og gangstéttum um allan heim! Þegar líður á daginn, um allan heim, safnast myndir frá listamönnum frá yfir 80 löndum í öllum heimshornum, sem taka þátt í þessum kraftmikla degi sköpunar.
Tökum þátt í gleðinni!
Efniviður og leiðbeinendur verða á staðnum
vefsíða Print Day in May: