Málverkasýning: Nemendur af Listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri sýna í Deiglunni
Sýningin er opin 14 – 17 helgina 15. og 16 apríl.
Nemendahópur á listnámsbraut VMA sýnir málverk sín. Þau eru afrakstur áfanga í málverki þar sem lögð var megináhersla á sköpunarferli frá eigin hugmynd að lokaniðurstöðu. Tækniprufur voru unnar og rannsóknar- og tilraunavinna þar sem engin leið var sjálfgefin. Unnið var á persónulegan hátt með sjónarhorn, myndmál, myndbygginu, form og lit. Verkin voru unnin með akríllitum.
Hér eru nokkrar myndir þar sem unnið er að þessari líflegu sýningu. Ekki er um myndir af fullunnum myndverkum að ræða.