Nýr formaður!
Aðalfundur Gilfélagsins var haldinn í gær, kosin var ný stjórn og nýr formaður. Gaman að segja frá því að nýji formaðurinn er einn af stofnendum Gilfélagsins og einnnig fyrsti formaður þess. Hann Guðmundur Ármann Sigurjónsson hefur alla tíð borið hagsmuni Gilfélagsins fyrir brjótsti og er það mjög ánæjulegt að hann komi núna aftur til starfa sem formaður. Allir sem þekkja Guðmund vita að hann gerir hlutina vel og er trúr sinni hugsjón. Við hjá Gilfélaginu bjóðum hann hjartanlega velkominn til starfa og óskum honum til hamingju með Formannsembættið!
Það eru spennandi tímar framunda hjá Gilfélaginu í Listagilinu á Akureyri.