Við leitum af þeim sem var hafnað – Salon des Refusés
VIÐ LEITUM AF ÞEIM SEM VAR HAFNAÐ
Gilfélagið auglýsir eftir þátttöku listamanna í sýningunni ‘Salon des Refusés’ sem verður opnuð 29. maí, á sama tíma og samsýning listamanna sem voru valdir af dómnefnd Listasafnsins á Akureyri. Öllum er velkomið að taka þátt, hvort sem verkum var hafnað af dómnefnd, innri dómnefnd, tímaleysi, mótþróaþrjóskuröskun eða hvaða afsökun sem hentar það sinnið.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt er bent á að skrá sig hjá gilfelag@listagil.is, skila þarf inn verkum eigi síðar en þriðjudaginn 25. maí í Deigluna. Tekið á móti verkum eins lengi og húsrúm leyfir.