Handmótuð áhrif – 1600 niðurfelld nauðgunarmál
Þátttakendur óskast!Dagana 10. – 13. maí verða vinnustofur á vegum verkefnisins Handmótuð áhrif – 1600 niðurfelld nauðgunarmál í Deiglunni á Akureyri.
Á tímabilinu 2000-2020 voru um 1600 nauðgunarkærur á landsvísu felldar niður, verkefnið felst í að myndgera hverja kæru með leirstyttu og sýna þannig umfang vandans sjónrænt. Sýning á verkunum í heild verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 25. nóvember 2021, við upphaf alþjóðlegs 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Markmið verkefnisins er að afhjúpa og gera sýnilegt það kerfislæga vandamál sem felst í því að nauðgunarmál eru ekki tekin nægilega alvarlega í réttarvörslukerfinu og þeim er ekki veittur sá framgangur sem nauðsynlegur er.
Hver vinnustofa er um 90 mín og þið eruð öll hjartanlega velkomin.
Best er að forskrá sig vegna fjöldatakmarkana á netfangið: 1600nidurfelld@gmail.com eða með skilaboðum í gegnum facebook.
Verkefnið nýtur góðs stuðnings Gilfélagsins.