Myndlistarverkstæði Gilfélagsins
Opið myndlistarverkstæði fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára í Deiglunni laugardaginn 17. október kl. 13:00 – 17:00.
Hægt verður að þrykkja einþrykk og hæðarprent með einföldum efnum á pappír. Einnig stendur til boða að mála, gera skúlptúra úr tré, pappír og endurunnu efni. Myndlistarmenn og kennarar leiðbeina. Börnin geta komið og verið eins lengi eða stutt og þau vilja og prófað ýmsa miðla. Lagt er til að forráðamenn séu nálægt og við hvetjum forráðamenn og börn til að vinna saman. Börnin geta tekið verkin með sér heim að degi loknum.