Miklabæjar-Solveig
Kynningardagskrá á draugasöngleiknum Miklabæjar-Solveigu eftir Vandræðaskáldin Sesselíu Ólafsdóttur og Vilhjálm B. Bragason.
Dagskráin verður flutt í Deiglunni sunnudaginn 4. febrúar, kl. 15:00.
Sagt verður frá verkefninu og nokkur lög úr sýningunni flutt. Verkefnið er dyggilega stutt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands
Flytjendur eru:
Birna Pétursdóttir
Jóhann Axel Ingólfsson
Sesselía Ólafsdóttir
Sindri Snær Konráðsson
Vilhjálmur B. Bragason
Wolfgang Frosti Sahr
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis
(en frjáls framlög og hvers kyns ölmusa vel þegin 😉 )