Lista- og handverksmessa Gilfélagsins
Auglýsum eftir þátttakendum
Nú er tækifæri fyrir listamenn og handverksfólk að koma list sinni og handverki á framfæri í húsnæði okkar, Deiglunni í Listagili á Akureyri, föstudaginn 1. desember kl. 19 – 22 og laugardaginn 2. desember kl. 13 – 17.
Skráningarfrestur er fyrir 24. nóv. Þátttakendur geta leigt borð í Deiglunni gegn vægu verði. Hámarksfjöldi borða er 18, fyrstir koma fyrstir fá.
Hægt er að skrá sig með tölvupósti á netfangið, gilfelag@listagil.is.
Einnig má fá frekari upplýsingar um messuna hjá Ingibjörgu Stefánsdóttir í síma 895 3345 og Guðmundi Ármann í síma 864 0086.