Ljóðlist & gervigreind – Sköpun á tæknivæddri öld
Erindi okkar er rannsókn á samspili mannlegs eðlis og gervigreindar og áhrif hennar á framtíðina. Ljóðskáld og gervigreindarvísindamenn eru á sömu vegferð í þeim skilningi að reyna að átta sig á því hvað það er, að vera manneskja. Við leggjum upp í þann leiðangur og reynum að skila þessari tilvistarlegu pælingu vísinda og ljóðlistar í formi fyrirlestrar.
Viðburðarhaldarar eru Eyþór Gylfason skáld og Sigurður Óli Árnason meistaranemi í gervigreind í Utrecht háskóla.
Staðsetning: Deiglan (Gilfélagið – Listagil)
Þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20:00 – 22:00
Við erum hluti af Listasumri!
#listasumar