Gilfélagið auglýsir eftir þeim sem var hafnað!
Gilfélagið stendur fyrir samsýningunni „Salon des Refusés“ í Deiglunni. Þeim sem var hafnað. Sýningin opnar samsíða Sumarsýningu Listasafnsins, laugardaginn 10. júní, þar sem dómnefnd hefur valið inn verk og listamenn tengdum Akureyri og nærsveitum.
Skráning fer fram hjá Gilfélaginu á: gilfelag@listagil.is – Gott væri að fá mynd af verki eða tengdu verki ásamt stuttum texta um þig. Öllum er velkomið að taka þátt.
Sýningin endurspeglar hvað listamenn á Norðurlandi eru að fást við þessa stundina.