ÚTSKRIFTARSÝNING NEMENDA Á LISTNÁMS- OG HÖNNUNARBRAUT
Á morgun, laugardaginn 22. apríl, kl. 15 verður opnuð útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA. Sýningin, sem ber heitið „Upp“, er bæði á svölum Ketilhússins og í Deiglunni í Listagilinu og stendur hún til 30. apríl nk. Við opnun sýningarinnar flytur Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA ávarp.
Á sýningunni eru verk þrettán útskriftarnema af listnáms- og hönnunarbraut en brautskráning verður 27. maí nk.
Sex nemendur eru á hönnunar- og textílkjörsviði; Anton Örn Rúnarsson, Birna Eyvör Jónsdóttir, Elva Rún Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir, Kamilla Sigríður Jónsdóttir og Karitas Fríða W. Bárðardóttir.
Sjö nemendur eru á myndlistarkjörsviði; Andri Leó Teitsson, Ármann Ingi Þórisson, Eva Mist Guðmundsdóttir, Fanný María Brynjarsdóttir, Sandra Wanda Walankiewicz, Sindri Páll Stefánsson og Valgerður Þorsteinsdóttir.
Nemendur hafa að undanförnu verið að vinna að undirbúningi og uppsetningu sýningarinnar. Hér má sjá veggspjald sýningarinnar sem Sandra Wanda Walankiewicz hannaði. Í gær, á sumardaginn fyrsta, unnu nemendur (hér eru níu útskriftarnemanna) að því að setja upp sýninguna og þá voru þessar myndir teknar.
Sem fyrr segir verður sýningin opnuð formlega á morgun og henni lýkur 30. apríl. Sýningin í Ketilhúsinu verður opin kl. 12-17 alla daga nema nk. mánudag. Í Deiglunni verður opið kl. 12-17 núna um helgina og aðra helgi, lokað verður nk. mánudag en opið kl. 16-17 á þriðjudag, fimmtudag og föstudag í næstu viku.