Archives of Akureyri – Erin Gericke

Þann 27. mars opnar sýning gestalistakonunnar Erin Gericke í Deiglunni, sem hún kallar „Archives of Akureyri“, sem er safn verka sem sækja innblástur í bókmenntir og einblínir á íslenska fugla.
Verk hennar nota gamalt efni frá bóksafninu, svo sem gamla vanskilamiða og spjaldskrárspjöld til að skapa narratíf málverk sem tengja bókartitla við viðfang málverksins. Með björtum litum og einföldum línum býr Erin til verk sem skeyta saman náttúrulegum elementum við manngerð stundarfyrirbæri sem eins konar leið til að gefa þessum brotum úr bókmenntasögunni framhaldslíf sem listaverk. Sýningin inniheldur ný verk á gömlu bókasafnsaðföng og efni til að etja saman þá fugla sem sækja Ísland heim og á sama tíma; upplifun Gericke af tíma sínum á Akureyri.
Erin Gericke starfar í Bandaríkjunum sem vinnur með endurunnið efni sem leið til að vísa til fyrri starfa sinna innan bókasafna. Hún hlaut BFA í málverkinu frá Southeast Missouri State University árið 2020. Vatnslitamálverk hennar vinna með einfaldar línur og lagskiptingu til að skapa málverk sem eru innblásin af náttúrunni og tvinna saman sögur fundnar í efni bókasafnana sem þeim er stillt upp saman við.
Á meðan dvöl hennar stendur hérna á Íslandi er hún í samstarfi við Amtsbókasafnið á Akureyri og býður upp á sýnikennslu í málverkinu alla fimmtudagsmorgna í mars.
Sýningin verður opin helgina 27.–29. mars og við hvetjum öll til að líta við!